Skiladagsetningar skattframtala og ársreikninga 2021

Eftirfarandi skiladagsetningar skattframtala og ársreikninga á árinu 2021 vegna tekna á árinu 2020, er gott að hafa í huga.

Skilatímabil skattframtala einstaklinga er 1. – 12. mars.

Lokafrestur skila skattframtala einstaklinga með atvinnurekstur er 20. apríl.

Lokafrestur skila ársreikninga lögaðila til fyrirtækjaskrár er 31. ágúst.

Lokafrestur skila skattframtala lögaðila er 1. október.

Categories: Fréttir